Markvisst er dregið úr kostnaði þar sem hægt er til að hagræða rekstri
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris var 0,17% á árinu 2019 en 0,19% á árinu 2018. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum var 3,71% á árinu 2019 en 4,08% árið áður. Frá stofnun Birtu lífeyrissjóðs í lok árs 2016 hefur hlutfall rekstrarkostnaðar lækkað úr 0,22% í 0,17%. Sjóðurinn hefur markvisst dregið úr kostnaði þar sem hægt er og eru samlegðaráhrif þess að sameina forvera Birtu lífeyrissjóðs komin fram.
Í skýringu 8 í ársreikningi má sjá sundurliðun á skrifstofu- og stjórnunarkostnaði sjóðsins.
meðalstaða eigna
Laun og launatengd gjöld voru alls 435 milljónir króna árið 2019 en 437 milljónir króna árið 2018. Stöðugildi voru 27,0 á árinu 2019 en 28,4 á árinu 2018 sem er að hluta vegna þess að tveir starfsmenn sjóðsins voru í fæðingarorlofi hluta af árinu.
Lögfræðikostnaður á árinu 2019 nam 5,4 milljónum króna samanborið við 3,1 milljón króna árið 2018.
Aðkeypt tölvuþjónusta árið 2019 nam 5,6 milljónum króna en var 13,6 milljónir króna árið á undan. Kostnaður við rekstur upplýsingakerfa jókst um 6,2% á milli ára.
Gjöld til umboðsmanns skuldara jukust um 17,6% og eftirlitsgjöld til Fjármálaeftirlitsins jukust um 3,6% á milli ára en greiðslur til Landssamtaka lífeyrissjóða drógust saman um 3,5%.
Annar rekstrarkostnaður nam 93,3 milljónum króna á árinu 2019 samanborið við 95,9 milljónir króna árið 2018 og dróst saman um 2,7%.