Launamenn, atvinnurekendur og þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi skulu greiða iðgjöld í lífeyrissjóð frá 16 ára til 70 ára aldurs. Aðild að Birtu lífeyrissjóði byggist á ákvæðum kjarasamninga stéttarfélaga, aðild fyrirtækja eða á almennum forsendum. Í sjóðnum eru launamenn sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum og/eða byggja starfskjör sín á kjarasamningum stéttarfélaga. Þeim er líka heimil aðild sem hvorki eru bundnir kjarasamningum tengdra stéttarfélaga né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum en óska eigi að síður eftir aðild að sjóðnum.
Í árslok 2019 áttu 97.630 manns réttindi í samtryggingardeild Birtu lífeyrissjóðs. Á árinu 2019 greiddu 18.284 iðgjald til samtryggingardeildar en 18.806 árið 2018. Virkir sjóðfélagar voru 15.805, það er að segja þeir sem greiddu að jafnaði iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum. Alls greiddu 5.662 launagreiðendur iðgjöld og námu iðgjaldagreiðslur til samtryggingardeildar 17.829 milljónum króna að meðtöldum réttindaflutningi og endurgreiðslum. Framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði nam 182 milljónum króna á árinu.
Á árinu 2019 námu iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, 848 milljónum króna. Það er 1% aukning frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, námu 486 milljónum króna á árinu 2019.
| Sérhæfð byggingarstarfsemi | 13% |
| Bygging húsnæðis, þróun bygginga | 10% |
| Sala, viðgerðir og viðhald á vélum | 6% |
| Framleiðsla á málmvörum | 5% |
| Heildverslun | 5% |
| Smásöluverslun | 5% |
| Opinber stjórnsýsla, varnarmál ofl. | 4% |
| Rafmagns-, gas- og hitaveitur | 4% |
| Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum | 3% |
| Matvælaframleiðsla | 3% |
| Veitingasala og -þjónusta | 3% |
| Starfsemi arkitekta og verkfræði | 3% |
| Framleiðsla málma | 3% |
| Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni | 2% |
| Flutningar á sjó og vatnaleiðum | 2% |
| Annað | 29% |
| Ríkissjóður Íslands | |
| Marel Iceland ehf. | |
| Samskip hf. | |
| Rarik ohf. | |
| Rio Tinto á Íslandi hf. | |
| Landsvirkjun | |
| Ístak hf. | |
| Kaupfélag Skagfirðinga | |
| Veitur ohf. | |
| Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. | |
| Norðurál Grundartangi ehf. | |
| Atvinnuleysistryggingasjóður | |
| Samkaup hf. | |
| VHE ehf. | |
| Isavia ohf. | |
| N1 ehf. | |
| Brimborg ehf. | |
| Sýn hf. | |
| Flugleiðahótel hf. | |
| Rafmiðlun hf. |